Monday, November 19, 2007

Sniðug síð

Hey gefum hungruðum og lærum eitthvað í leiðinni
http://www.freerice.com/index.php

Monday, November 12, 2007

Takk Helga Dís

Helga Dís takk yndislega fyrir linkinn sem þú sendir
hann var æði

Fyrir ykkur hina Star Wars Fans - gjörið þið svo vel

afhverju var þetta ekki með í Spaceballs

Monday, November 05, 2007

I am so ronely

ótrúlegt að þetta virkar - eru menn svona rosalega oblivious


Privet, my gentleman
A beautiful woman is writing you a letter. This woman is me... I will tell you something sad about myself. I am a woman who lost all hopes and dreams to be happy into marriage life. I lost belief into attempts to find my rue Love.
A lot of men deceived me, tried to broke me and hurt me deeply. But I have never given up, I overcome all betrayals, lie and went toward my happiness again and again. But... I am still alone... I am tired to live in lie, to be a beautiful toy into cruel hands of somebody whom I don't love.
I don't know you, but I was frank with you and if you feel that you're a man who is able to love, who is able to make me happy, to cure all scars into my soul. You may expect for sincere and true love of a beautiful, but lonely woman with broken heart where is left some place for true love who can appreciate it [____ Linkur hér - en vil ekki setja hann inn út af SPAM ]
Do svidaniya
Juli P

Sumarbústaður og James

Fór í yndislega sumarbústaðaferð með vinkonum mínum um helgina, Evu, Drífu, Kötlu og Helgu Dís. Ætla ekkert að segja of mikið frá því en þrjár af okkur fundu draumaprinsinn um helgina. Vildi deila með ykkur Mr. Bertoni sem við skírðum svo sameiginlega James og ætlum að deila honum með okkur. Var að spá í að fara inn í búðina á Selfossi og kaupa auglýsingaborðann með honum og hengja hann upp í sumarbústaðnum svo hefðum við getað verið með hóp.....

Wednesday, October 31, 2007

scary

Þetta er líka scary

Tónlist

Tónlist og smá klipping getur kjörsamlega breytt hugmynd að kvikmynd - kíkið á þetta

Thursday, October 25, 2007

halelúja

praise the lord - þetta hér er ekki grín

Friday, October 19, 2007

Kisar

Svo sætir svona á föstudagseftirmiðdegi
Kettir you got to love them

Saturday, October 13, 2007

meira gaman

er komin með diggann lesanda, hana Helgu Dís - takk fyrir öll kommentin
verð að halda áfram að skemmta henni og öðrum.

Þessir eru núna í uppáhaldi hjá mér - kíkið á þetta og þetta

Friday, October 05, 2007

þeir eru nú alveg

svo er náttúrulega þetta nauðsynlegt þegar maður er að læra tungumál.

Japanir

Japanir eru svo fyndnir - skoðaðu þetta

Tuesday, September 25, 2007

Bretar engum líkir

Ég dýrka Breta - þeir eru svo fyndnir

Wednesday, September 19, 2007

röfl

ég var að rifja það upp fyrir sjálfri mér þegar ég lagðist inn á spítala í vetur með innvortisblæðingar. Ég var ekki að rifja það upp heldur viðbrögð gaursins sem tók á móti mér á bráðamóttökunni. Það fyrsta sem hann spurði mig að eftir að ég var búin að leggjast í hnipri niður á bekk „Hvar ertu í tíðarhringnum“. „Getur þetta ekki verið túrverkir eða egglos“. WTF - að voga sér hreinlega að spyrja þessarar spurningar fannst mér alveg fyrir ofan garð (mitti) og neðan. „Ég held ég viti nú hvernig túrverkir og egglos eru eftir að vera búin að vera á túr í meira en 15 ár“
Ætli kona hefði spurt að því sama?

Röfl endar

Monday, September 17, 2007

Góðir

Tveir tónlistarmenn með skemmtilegan texta
svolítið karllægt en hvað samt fyndið

sjá hér

Thursday, September 13, 2007

Fynd

Sumt er bara fyndið

minnir óheyrilega mikið á Ísland og Íslendinga

Tuesday, August 28, 2007

hahahh

Ok þessi hjálpar ekki beint til við hugmyndina um stereótýpuna

Wednesday, July 25, 2007

Myndband

Fann þetta snilldar myndband
minnir mikið á þegar vinkona mín hún Drífa smitaði okkur af Scaryface
ásamt fallegum skotum sem hafa verið teknar á myndavélar að undanförnu
og er bara týpískt eitthvað sem ég og vinir mínir gerum

súkkulaðivax

Fór í hádeginu í vax - bíkínívax - jamm Brasilía here I come - fékk eitthvað nýtt vax sem heitir súkkulaði vax - brúnt vax sem harðnar svo og verður að plasti og það er svo bara rifið af.

Ég get ekki sagt að þetta hafi verið the most pleasent lunch break sem ég hef haft. Góð rækt - svitnaði og svitnaði - reyndi að einbeita mér að Lifandi vísindum en hvorki gat það vegna sársauka né bligðunarkenndar. Liggjandi með fæturnar upp og haldandi undir hnésbæturnar á meðan að einhver kona með hanska límir eitthvað á mig og rífur þar til augun detta út úr með tárum.

Ekki nóg með það þá fór ég aftur í nærbuxurnar eftir á - fór svo núna á klóið og átti í mestu vandræðum með að komast til að pissa þar sem súkkulaði klessur voru fastar í afgangshárum (jamm ég tók ekki allt - vil ekki vera tólf ára) og svo eru nærbuxurnar (fór í ljósar) orðnar allar út í brúnum klessum eins og ég hafi kúkað á mig fram á við.

Nú er ég voða fín en er að spá hvort ég eigi að vera commando í dag

Tuesday, July 24, 2007

Jailið

æj aumingja hún Lindsay hún fékk greinilega ekki nógu mikla athygli og vildi endilega gera nákvæmlega það sama og Paris litla og fara í Jailið

- Britney gerði þó eitthvað öðruvísi og rakaði á sér hárið

En það er greinilega komið í tísku að fara í fangelsi - hmmm hvað á ég að gera af mér um helgina

Friday, July 20, 2007

Ég

Ég er búin að finna dýrið sem lýsir mér:

flott síða

Mér finsnt þessi síða skemmtileg

Wednesday, July 18, 2007

Þýðingar

Æj það er svo gaman þegar maður rekst á beinar þýðingar

Flottur bakpoki fyrir lifandi fólk á ferð og flugi

sem sé ekki fyrir látna

spurning um heiðarleika

ég veit ekki hvort ég hefði skilað þessu

Tuesday, July 10, 2007


PIIIIIIIIRRRRRRRRRRRRRRRR

Ég og Lúlli vorum að velta fyrir okkur að fara veiða og tjalda um helgina hjá Þórisstaðavatni inn af Hvalfirði. Taka bara rútu út í Ferstiklu og labba svo yfir heiðina með bakpoka með draslinu okkar. En nei þetta fuc............. land gerir ráð fyrir að allir eigi bíl. Óþolandi óþolandi land. Það eru engar rútuferðir inn í Hvalfjörð lengur - ekki ein einasta - ég er alveg BRJÁLUÐ
Mér finnst svo skelfilega sorglegt hvernig komið er fyrir íslenskum dómsstóli þegar maður horfir á sýknunina í nauðguanrmálinu á Hótel Sögu.

Það er viðurkennt að konunni hafi verið nauðgað:
Dómurinn segir að ótvírætt hafi komið fram hjá stúlkunni í málinu frá upphafi, að allt sem gerðist í salernisklefanum hafi verið gegn vilja hennar. Læknir á neyðarmóttöku hafi borið að stúlkan var í miklu uppnámi yfir því sem gerst hafði þegar hún kom á þangað, konan var með áverka og við sálfræðirannsókn hafi greinst merki um áfallastreituröskun. Þetta allt þyki styðja þann framburð hennar, að hún hafi ekki viljað eiga samræði eða önnur kynferðismök við manninn.

en samt er hann sýknaður. hann gerði sér sem sé ekki grein fyrir að hann væri að nauðga - heldur var hann bara að fá sér á broddinn í raun hjá "dauðri" stelpu - þar sem hún var frosin og hefði allt eins getað verið áfengisdauð.

það að maðurinn ýtti konunni inn í klefann, læsti klefanum innan frá, dró niður um hana, ýtti henni niður á salernið og síðan niður á gólf geti, hlutrænt séð, ekki talist ofbeldi í skilningi almennra hegningarlaga, eins og það hugtak hafi verið skýrt í refsirétti og í langri dómaframkvæmd. Nægi þetta eitt til þess að maðurinn verði sýknaður af ákærunni.

Skilaboðin út í samfélagið eru sem sé að það er allt í lagi að nauðga svo lengi sem konan (eða maðurinn) getur ekki varist. Ef manneskja er dauð þá er allt í lagi að ríða henni og nauðga því hún getur ekki varið sig.

ég skil bara ekkert í þessum dómi - þetta er svo mikið bullshit - svona já hún gengur um í pilsi ="hún bauð náttúrulega hættunni heim þar sem það var svo auðvelt að nauðga henni og hún veitti enga mótspyrnu"

Þessi blessaði heimur virðist bara fara versnandi - getum við ekki gert eitthvað í þessu - hvar eru mótmælin???

Monday, July 09, 2007


það er tívólí fyrir utan vinnuna mína núna - úff
sömu lögin over and over again - ískur í tækjum
spástelpu skrækir inn á milli - get ekki sagt að þetta sé ekki smáááá´þreytandi
sérstaklega ískrið í einhverju tæki sem er greinilega stöðugt í gangi og alltaf sama hljóðið - þetta er eins og svona fanga pínting þar sem dropi er látinn leka alltaf á sama stað þar til fólk verður sturlað

Jú ég gæti alveg lokað glugganum en þá verður loftlaust og heitt
arg
jú ég má alveg kvarta - það er nú einu sinni mánudagur

Thursday, July 05, 2007

Kína vs. USA

Einhvern veginn er ég viss um að við fengjum meiri fréttir af þessu ef þetta hefði gerst í USA

Thursday, June 28, 2007

Dilemna

Flott saga um þetta klassíska dilemna -á maður að vera feministi eða fylgja tískunni eða er hægt að gera bæði og líka klassískt eitthvað sem allir hafa lent í

Monday, June 25, 2007

enn eitt banaslysið

Enn eitt banaslysið varð við kárahnjúka í dag - sjá hér
er náttúran kannski að segja okkur eitthvað ????
og ef svo - ætli það verði hlustað á hana

Friday, June 15, 2007

Kaffiskrattinn

mætti halda að það væri mánudagur
ég helt stórum bolla af kaffi - fyrsta morgunbollanum yfir allt skrifborðið mitt áðan
náði að bjarga tölvunni og lyklaborðinu en músin blotnaði smá. Nú þegar ég er búin að þrífa það allt upp angar allt í kringum mig af kaffi.


Jæja ég ætti þó allavega að vera vel vakandi í vinnunni í dag


Friday, June 08, 2007

Hraði þjóðfélagsins

Þjóðfélagið okkar er á fleygiferð og er því hraðinn farinn að skipta meira máli en gæðin
Mogginn hefur t.d. alltaf verið mjög duglegur við að prófarkalesa en eftir að hraðinn í vefmiðlunum kom á laggirnar hefur þetta breyst gríðarlega. ég hef tekið eftir þessu í gegnum árin að það eru stafsetningarvillur, málvillur, vantar stafi og fleira og það nýjasta er núna að hægt er að lesa upphaflegu greinina að hluta til á móðurmáli þess sem skrifaði hana e.t.v. upphaflega

Connery, lék dr. Henry Jones í þriðju Indiana Jones-myndinni - Sir Sean, who played Dr Henry Jones in 1989's Indiana Jones and the Last Crusade - sem kom út árið 1989. Hann segist hafa íhugað það vel og lengi hvort hann ætti að taka að sér hlutverkið eður ei.

Flýtum okkur aðeins hægar

Tuesday, June 05, 2007

París og aftur París

Alltaf fæ ég jafn mikinn hroll þegar ég skoða slúðrið varðandi París Hilton
Nýjasta sem hún sagði var:

að þrátt fyrir að hún væri óttaslegin væri hún reiðubúin að taka afleiðingum gjörða sinna, en hún var dæmd í 23 daga fangelsi fyrir að rjúfa skilorðsbundinn dóm er hún hlaut fyrir ölvunarakstur. Kvaðst hún með þessu vonast til að geta sett ungum stúlkum gott fordæmi.

What setja þeim gott fordæmi - já það er allt í lagi að keyra fullur og það oftar en einu sinni en þú þarft samt að fara í fangelsi. Svo verðurðu á spes álmu - ef þú átt pening o.s.frv.
Hún talar ekki um að hún iðrist gjörða sinna heldur að setja gott fordæmi - hvernig getur þessi gella sagt svona - hefur aldrei - ekki að minni vitund gert nokkurn skapaðan hlut sem er gott fordæmi fyrir aðrar ungar stúlkur
. djís

Thursday, May 24, 2007

Leikir

Hvers konar fólk býr eiginlega svona leiki til ?
Hvað kennir þetta fólki?

Wednesday, May 23, 2007

Hvalavinir

Er á póstlista fyrir "animal welfare" en auðvitað fær maður stundum eitthvað sem er aðeins of mikið greenpeace fyrir minn smekk



Is your sushi brand killing whales?
Click here to take action


Dear Laila,

With only a few days until this year’s International Whaling Commission (IWC) meeting, it is critical that we take steps now to end the cruelty of all forms of commercial whaling.

As one of the last remaining large-scale distributors of whale meat in Japan, seafood company Kyokuyo Co., Ltd has been a major player in Japan’s history of commercial whaling since the 1930’s.

The premier sushi quality seafood distributor in the US, True World Foods, Inc., announced a partnership with Kyokuyo in 2006 to sell sushi in the US under the brand name “Polar Seas.”

Tell True World Foods to end the raw deal for whales

If you eat at the sushi restaurants and supermarkets supplied by True World Foods, you are probably unaware that you could be supporting a company at the heart of the commercial whale hunting industry in Japan.

Kyokuyo’s sale of whale meat in Japan fuels the continuation of whaling by Japan, which violates the worldwide ban on commercial whaling. Starting this year, Japan plans to cruelly hunt a total of 1035 whales in the Southern Ocean Whale Sanctuary alone, including 50 humpbacks.

Many whale species have still not recovered from the intensive commercial whaling of the past. And today they face many other threats such as marine pollution, underwater noise, ship strikes, by-catch, entanglements and climate change. They simply cannot withstand the resurgence of commercial whaling.

Please urge True World Foods to persuade its partner Kyokuyo to immediately stop all whale meat sales and distribution and to shut down the production of canned whale meat in Japan.

It will take much more than simple verbal condemnations to stop commercial whaling. It will take definitive action with real consequences for those who continue to defy international law.

This painful slaughter of whales does not benefit science, animals or people.

For the whales,

Fred O’ Regan
President and CEO

P.S. Most people still think the whales were saved decades ago. Please forward this email to your friends to let them know that whales face more threats today than ever before.

Þetta gengur ekki lengur

Mér fannst það snilldarákvörðun hjá Samfylkingunni að hafa kynjajafnrétti á ráðherrastólunum sínum en auðvitað gerði Sjálfstæðisflokkurinn ekki slíkt hið sama.

Ef að stelpur sem eru að alast upp og konur almennt verða áfram "treataðar" sem annars flokks matur þá heldur þetta náttúrulega áfram svona:

Ný niðurstaða frá Bifröst frá 100 stærstu fyrirtækjum landsins - sjá meira hér:

Konur skipa 8% stjórnarsætanna (32 af 408 stjórnarsætum). Árið 2005 var hlutfall þeirra 12%.
Konur eru 14% meðal æðstu stjórnenda fyrirtækjanna (46 konur af 328 forstjórum og
framkvæmdastjórum). Árið 2005 var hlutfall þeirra um 10%.
Þriðjungur fyrirtækjanna eru með skriflega jafnréttisáætlun.
Engin kona er í stjórn 71% fyrirtækjanna

Friday, May 11, 2007

sumir brjálaðir

pissaði næstum á mig af hlátri - reyndar líka sumt svolítið grimmt
en það getur sko enginn sagt að mínir kettir hafi verið geðveikir eftir að þið horfið á þetta

Ég bara veit ekki hvað ég á að segj

Ég verð að þakka Bjössa alveg sérstaklega fyrir að hafa bent mér á þetta
ég get bara sagt - menningarlegir mismunir eru svo sannarlega til staðar

Játningar Lailu

Ég nenni ekki að tala um hversu fúl ég er yfir úrslitum Eurovision í gær - alveg brjáluð - en þetta hafði ekki eins djúp áhrif á mig og þegar Eiríkur söng Gleðibankann og ég var 100% viss um að við myndum sigra Eurovision - svekkelsi

Var í Pizzupartý hjá Evu í gær og þar sem ég hef ekki mikla þolinmæli fyrir sjónvarpi og hvað þá Eurovision þá fór ég að tala um hluti sem mörgum fannst bara fyndnir. Kallað játningar Lailu og fyrst allir voru ekki þar þá er best að koma þessu bara út - man reyndar bara tvennt

  • Mín fjölskylda sat og horfði á Eurovision saman þegar ég var lítil (Þegar það var enn sinfónía, allir sungu á sínu tungumáli og mun meiri hátíðleiki var yfir öllu) - allaveganna þá sátum við systurnar með upptökutæki (kassettu) og vorum með hljóðnema og þegar lag var að byrja ýtti sú elsta á rec og play og sagði t.d. Þýskaland og svo var lagið tekið upp. þetta voru mjög hátíðleg móment í minni fjölskyldu
  • ég átti plötuna (svona plata með einu lagi á hvorri hlið) með henni Nicole sem vann 1982 með ein bisschen Frieden - á einni hliðinni var þýski textinn og hinni hliðinni enski - mér fannst hún ÆÐI
  • Ég held ég hafi ekki misst af einni Eurovision keppni - horfði meira að segja á þegar Íslendingar sendu Angel en þá bjó ég í Danmörku og heyrði og sá lagið þá í fyrsta sinn - ég roðnaði og blánaði af aumingjahrolli yfir laginu og fílaði miklu betur lagið sem Danirnir sendu Never let you go en það lenti í 2. sæti á meðan Íslendingar voru í næstneðsta og fengu bara 3 stig í allri keppninni
  • ég var ýkt sár yfir að Danirnir unnu ekki þá keppni þar sem ég bjó í Köben og var svo tilbúin til að fara út og finna fyrir þjóðarstolti með Dönunum sem ég vissi að ég myndi aldrei (aldrei að segja aldrei) upplifa með Íslendingum = þ.e. að vinna Eurovision

Thursday, May 10, 2007

Lúlli sendir

Lúlli var að senda mér myndband
ég vissi fyrst ekki hvort ég ætti að þora að hlæja
en það er bara allt í lagi að hafa húmor og hvað þá húmor fyrir sjálfum sér

Tuesday, May 08, 2007

símastæði

þetta finnst mér sniðugt - alltaf hrifin af svona nýjungum til að auðvelda fólki lífið

Umhverfismengun

ohhh maður fær alltaf illt í hjartað þegar maður les svona fréttir.
Jörðin er að sökkva og við höldum áfram að menga, byggja álver og virkjanir og drulla yfir jörðina.

Hugmyndir til stjórnmálamanna varðandi umhverfismengun - gott er nefnilega að byrja einhvers staðar:

1. Umbuna fólki fyrir að hjóla, labba, taka almenningsvagna o.s.frv. til vinnu - ef einstaklingar fá eitthvað til að byrja með t.d. fyrir að hjóla í vinnuna - segjum skattaafslátt eða eitthvað slíkt þá hefur það áhrif. Svo um leið og vaninn er kominn á þá langar þá ekki að keyra í vinnuna því hitt er mun betra - líður betur með það o.s.frv. - því miður þarf oft skammtíma ágóða fyrir einstaklinga til að byrja en ekki langtíma ágóða eins og hrein náttúra.
2. Það þarf að setja upp kerfi þar sem eru grænir pokar fyrir lífrænt rusl, brúnir fyrir pappír o.s.frv. og ruslið yrði sótt flokkað heim til fólks - margir veigra sig undan því að flokka því þeir nenna ekki að fara í sorpu eða á aðra gámastaði en ef þetta er sótt heim til fólks þá er ég viss um að fleiri myndu taka þátt
3. Leggja skatt á bíla sem menga meira og fylgst með akstri fólks - ef fólk keyrir á jafnari hraða þá eyðir það minna bensíni sem leiðir til minni umhverfismengunar
4. Efla fólk í að kaupa matvælaumbúðir sem eru ekki plast ofan í plast o.s.frv. - því minna umbúðarvesen því betra fyrir náttúruna. Hvernig væri t.d. að Ríkið myndi sjá til þess að skaffa fólki t.d. glerdollur sem það gæti geymt t.d. pasta, kaffi, hrísgrjón og allar þessar vörur sem við erum svo oft að kaupa og fáum fullt af rusli með (umbúðarrusli). Svo færi fólk með glerdollurnar sínar í búðina og þar væri viktað í dollurnar - kæmi líka bara skemmtileg markaðsstemning út frá því

jæja þetta eru bara nokkrar hugmyndir sem hafa komið upp í hausinn minn. Fleiri hugmyndir óskast
ætti ég kannski bara að fara á þing með þessar hugmyndir??

Monday, May 07, 2007

megrunarlausi dagurinn - tók óbeint þátt

Komst að því að megrunarlausi dagurinn var í gær - vissi ekki af því en tók þátt í honum og er stolt af því

Ég át - subway með kóki - í hádegis/morgunmat -Labbaði niður á Granda að ná í reiðfákinn minn - og hjólaði til baka og horfði á fólk - át M&M með kóki (afgangskóki frá Subway) - hjálpaði Ólöfu að þrífa íbúðina sína sem hún er að flytja úr og borðaði TV dinner - believe me or not 1944 rétt í kvöldmat (gerist aldrei - en nennti sko ekki að elda og hungur kallaði) - með enn sama 1/2 lítra kókinu frá Subway og skemmtiefninu Law and Order

Svo ég held að ég hafi bara tekið ágætlega þátt í deginum - var ekkert að hugsa of mikið hvað ég lét ofan í mig og hreyfði mig til skemmtunar - stóð reyndar ekki á torginu og predikaraði um átröskun og offitu - get ekki sagt að ég hafi labbað um og vakið athygli á því hvað fólk borðar - reif engar pylsur úr höndunum á stóru fólki eða tróð pylsu upp í litla fólkið en ég er þó að blogga um megrunarlausa daginn í dag - svo hey ég tek smá þátt

Saturday, April 28, 2007

hár

fór með Drífu í búðir í dag sem er kannski ekki frásögufærandi nema ég var góður sjopping partner og náði að bomba fullt af dóti á hana - ég sjálf í straffi vegna ofureyðslu í London - keypti samt hlýrabol og eyrnalokka - hey má smá

allaveganna þá var Drífa að máta gallabuxur í Debenhams og ég var að skoða mig í speglinum - mjög nálægt - og tek þá eftir svörtu hári - kolbikasvöru hári á hökunni - eitt hár sem stakkst út úr hökunni minni - what the f.... hvað er þetta - sýndi Drífu í mikilli örvæntingu og hún kallaði mig gamla konu - eða svona næstum því. Enginn plokkari með í för hvað er í gangi - hélt reyndar að þetta gæti verið að það hefði stungist hár þarna inn vegna þess að ég fór í klippingu í gær - vonandi - er sko ekki til í að fá hár á hökuna eins og gömlu konurnar

en mér til mikillar ánægju þá er þetta hár núna farið - án plokkara - bara farið - svo það hlýtur að hafa verið hár úr klippingunni - eða það er eins gott !!!!!!!!!

Wednesday, April 25, 2007

Mætti allt of snemma

Jamm - mætti allt of snemma í vinnuna í dag - mætti 7:20
þurfti að undirbúa ráðstefnu sem byrjaði 8:30 svo ég vaknaði 6:30 og hjólaði af stað í roki og rigningu. Það var hreinlega enginn á ferli. Mætti Moggaútburðarmanneskju sem starði á mig eins og ég væri eitthvað skrítin að vera komin á fætur - hann horfði eins og hann hefði aldrei séð manneskju á ferli á þessum tíma.

en sökum þess að ég mætti svona snemma þá er ég strax orðin syfjuð fyrir framan tölvuna
næstum eins syfjuð og þessi

Tuesday, April 24, 2007

Sumar auglýsingar

Sumar auglýsingar vekja mann til umhugsunar sjá

Wednesday, April 18, 2007

Horuð

er alveg rosalega horuð þessa dagana. Er með hálsbólgu og kvef. Er búin að fara eftir hádegi heim í þessari viku en geri það sennilega ekki í dag - nema ég verði alveg að drepast.

Plan 1. er að fara í apótekið í hádeginu og fá fullt af stuffi - finnst reyndar verst að alltaf þegar ég fer með kvef og hálsbólgu í apótekið þá fæ ég ekki nægilega mikla meðaumkun og finnst ég bara vera aumingi með hor.

VIL FÁ MEÐAUMKUN OG GÓÐ LYF

sjáum hvað setur í apótekinu í hádeginu

Tuesday, April 17, 2007

Eru menn hissa?

eru menn virkilega hissa á nýjustu skotárásinni í gær í Virgíníu - nei ég bara spyr. Ég veit vel að það eru ekki byssur sem drepa fólk heldur fólk en hins vegar þá nær einstaklingur ekki að drepa eins marga, og er ekki eins líklegur til þess, með því að hlaupa á fólk og taka það hálstaki. Hvernig væri að Bandaríkjamenn fari að skoða byssulöggjöf sína.

Monday, April 16, 2007

Útlönd

skrapp til útlanda yfir páskana, til hinnar yndislegu borgar London. Alltaf gaman að kíkja heim. Fengum gistingu hjá Sollu og Sindra - takk fyrir það skötuhjú og nutum alls. Hittum fullt af vinum, drukkum fullt af víni, borðuðum mat frá öllum heimshornum (þ.m.t. Kúbu, Italíu, Japan, Kóreu, Tyrklandi og Paksitan). Fórum í brúðkaup hjá Yasser sem er frá Pakistan eða var það Palestína - úff man ekki núna og það var snilldar gaman og mikil reynsla. Foreldrar hans komu til að mynda dansandi á undan brúðhjónunum - hann með staf og hún með arabahljóðin sem arabakonur gefa frá sér við hátíðleg tilefni og vestrænar konur þurfa ábyggilega að fara í margra ára nám til að læra.

Ætluðum að fara á snúruna eftir þessa ferð en hefur ekki alveg tekist.
Reyndar var ég ýkt dugleg á sunnudaginn . þar sem ég vaknaði klukkan 9 og fór í pilates tíma - held ég hafi ekki vaknað svona snemma á sunnudegi í mörg ár - þ.e. ekki nema til að fara fram og pissa

Friday, April 13, 2007

ógeð

ég verð að viðurkenna að ég var í strögli hvort ég ætti að birta þetta hérna frá Lúlla
ég verð að vara ykkur við þetta er alls ekki fyrir viðkvæmar sálir

Friday, March 30, 2007

scared for life

talandi um að vera scared for life eftir þetta

Thursday, March 15, 2007

margt kemur á óvart

Já það kemur mér vissulega á óvart munurinn á hversu margir karlmenn og hversu margar konur sofa með bangsa, sjá hér.
Hvaða fleiri rúmvenjur ætli væri gaman að skoða -
hmmm - hvort fleiri karlmenn eða konur sofa nakið
- hvort karlmenn eða konur skipti oftar um á rúminu sínu (búa ein)
- hvort konur eða karlmenn velji ákveðna liti og mynstur frekar á rúmin sín
- hvort konur sofi oftar á hægri hlið eða vinstri hlið miðað við karlmenn
- hvort hið fræga "hug and roll" sé oftar notað af konum eða körlum

ábyggilega til margt meira sem ég vil fræðast um
best að fara gera rannsókn

Monday, March 12, 2007

Sætt

Ef þetta er ekki krúttað þá veit ég ekki hvað

Tuesday, February 27, 2007

Grín eða alvara

Oft er erfitt að meta hvort eitthvað sé algjört grín eða alvara. Hefur t.d. þessi fundið nýja hillu á markaðnum og ákveðið að nýta það eða notað þetta til að gera grín af svona fólki sem langar í svona.
Í þessu tilfelli þá hreinlega veit ég það ekki

Ætli bændasamtökin hefðu leyft ráðstefnu með þessum áhangendum

Monday, February 26, 2007

Yfirvinna

Ótrúlegt hvað maður vinnur mikið sumar vikur. Var frá í heila viku í þessum mánuði en er búin að ná þeim tímafjölda upp og gott betur.
Hmm það verður nú gott að komast bráðum í frí - er ekki alveg að koma sumar

Saturday, February 24, 2007

blót

var að velta fyrir mér blóti og hversu fáranlegt það getur verið og hversu skemmtilegt það getur veirð að þýða það beint
t.d.
I don't give a rats ass = Ég gef ekki rotturass
I don't give a flying fuck = Ég gef ekki fljúgandi ríð
Holy fuck = heilagt ríð
mad shit = brjálaður kúkur

stórkostlegt alveg

Sunday, February 18, 2007

komin heim

aldrei hefur mér liðið eins æðislega að vera komin heim eins og eftir þessa skemmtilegu dvöl mína á heilbrigðisstofnun á Íslandi. Mér leið eins og belju á vorin (þó ég viti nú ekki beint hvernig þeim líður). Hins vegar er ég ekki búin að gera mikið þessa dagana nema liggja upp í rúmi og taka töflur. Orðin algjör dópisti. Fékk reyndar fráhvarfseinkenni af morfíni aðfaranótt föstudags þegar ég var enn inni og lá alla nóttina með kramba í lærunum og vöðvunum og berjandi í fæturnar og bylta mér - þvílíkt og annað eins en lifði það af.
fórum svo í gær og sáum sigur íslenska víkingsins fyrir Eurovision - go Eiríkur go - Eva og Þór voru svo næs að bjóða okkur sjónvarpsleysungunum í heimsókn. Meðan þau sátu og drukku hvítvín - sem mig langaði ekkert smá í - sat ég með vatnsflösku og dóp - eins og einhver á E-i. Frábært að komast á meðal fólks á ný - maðurinn er greinilega félagsvera - eða þá allaveganna ég

Friday, February 16, 2007

bíða

Á meðan ég bíð eftir að verða útskrifuð sit ég og breyti bloggi og hlusta á kvalarfullar þjáningar konunnar við hliðina á mér sem er með eitthvað sem heitir stámi eða eitthvað slíkt - þ.e. poki ofan í ristilinn sem þarf að þrífa daglega (2svar á dag) ógeðslegt - ójá. Þessi grey kona kom fyrst inn í desember í eitthvað varðandi ristilinn og það voru gerð mistök og gert gat á ristilinn og nú er hún hér enn - fékk reyndar að fara heim um jólin - kom aftur í aðgerð og aftur voru gerð mistök - hvernig er það hægt
ohhh hvað ég er fegin að fara að losna héðan - bíð spennt eftir lækninum

kvart

jamm ég fékk kvart um að ég væri ekki búin að blogga neitt.
ég er samt með góða afsökun
fór í ristilspeglun á mánudaginn (jamm penetratuð í rassinn) og út frá því fékk ég innvortisblæðingar aðfararnótt þriðjudags. Nú er ég búin að liggja á illa lyktandi spítala - fastandi og loks þegar ég fastaði ekki lengur þá var ég látin borða þann versta mat sem ég hef á ævi minni smakkað - ég sver það gæti borðað nokkra hrútspunga í staðinn fyrir þetta - hvernig er hægt að eyðileggja hráefni svona mikið.
En góðar fréttir á að fara heim í dag - veii - og já það er internet á spítalanum svo ég er búin að geta unnið eitthvað en hafði ekki orku til að blogga fyrr en nú - sorrý :)
svo nú bíður mín bara haugur af vinnu þegar ég kem aftur til vinnu - vonandi á mánudag en helgin fer ábyggilega að pína í sig mat og slaka á -ótrúlegt hvað það er erfitt að borða aftur eftir að hafa fastað í svolítinn tíma.
en góða helgin krúttin mín og sorrý fyrir lítið blogg

Friday, February 02, 2007

Ábyrgir neytendur

Ég gleymi því aldrei þegar ég bjó í Danmörku og vinkona mín var úti í búð að kaupa mat. Hún setti meðal annars kjúklingabringur í körfuna sína en þá kom þar askvaðandi gömul kona og sagði "Vi köber inte kylling nu" og tók kjúklinginn og setti hann aftur upp í hillu. Mín bara þorði ekki annað en að hlíða - það var nýbúið að hækka kjúklingaverð í Danmörku og þar standa sko neytendur saman. Það er alltaf hægt að finna eitthvað annað i soðið. Hvernig væri að við myndum taka okkur þá til fyrirmynda og gera nákvæmlega það sama. Hætta að versla við liðið sem er stanslaust að hækka vörurnar sínar og gerast ábyrgir neytendur.
Þetta tekur ekki á - bara prenta út listann og vera meðvituð um hvað er í gangi í kringum okkur.
Verum meðvitaðir ábyrgir neytendur en ekki kaupóðir Íslendingar sem er alveg sama um verðlag

Wednesday, January 31, 2007

sá annað

Æi fann annað video og ég gat ekki stillt mig um að sýna ykkur það

dagurinn mikli

Frábærlega skemmtilegt að sjá hversu brúðkaup og brúður geta verið misjafnar þið verðið að sjá þetta - þið verðið að sýna þolinmæði fyrstu mínútuna en þetta er æði.

Monday, January 29, 2007

Hvað er í gangi?

Ótrúlegt hvað konur geta látið hafa sig út í. Hvað er með sjálfsmynd kvenna. Hvað gera stelpur ekki til að detta í það og komast til útlanda

Um helgina efndi Superman.is til stórveislu á Pravda og auglýstu eftir stelpum: Seiðandi tískusýning frá KNICKERBOX og Supergirl kepni!Húsið opnar 22:00 frítt inn til 24:00Frítt áfengi til 24:00 eða meðan birgðir endast! Ekki missa af fyrsta alvöru ljósmynda partýi ársins í boði superman.is og Cult shakerÓVÆNT UPPÁKOMA VERÐUR EFTIR UNDIRFATA SÝNINGUNNA Supergirl keppnin.Stelpur þurfa að skrá sig og að sjalsögðu mæta tímalega í partyiðog gera hvað sem er til að reyna að heilla SUPERMAN! Hún mun ráða allveg 100% hvað húnvill gera. Dansa, hoppa, fækka fötum eða bara hvað sem hugurinn gyrnist henni.Í vinning er utanlandsferð og fer skráningfram á supermanparty@gmail.comFram þarf að koma nafn, aldur, sími og auðvita email. Á meðan keppnin stendur yfir munu dömurnar gæða sér á Cult Shaker í boði VínTríó og Superman.is

Þetta varð svo útkoman - sjá meira ógeð hér
Takið líka eftir öllum stafsetningavillunum í auglýsingunni

hrikalega kúl myndir

mér finnst þetta alveg hrikalega kúl myndir

Góð helgi

Átti góða helgi. Pabbi bauð í leikhús í tilefni þess að ég er eldri og við fórum að sjá Best í heimi
rosalega skemmtilegt leikrit og ég hló og hló og hló. Fórum svo og drukkum rauðvín og gin og nutum þess að vera til. Á laugardaginn vann ég og fórum svo í myglaðan mat til tengdó. Átti nokkuð erfitt með að horfa á fólkið borða sumt - já ég veit ég er pattrófa með áferðarfóbíu en svona er ég bara. svo var bara hvítt og rautt og bjór á boðsstólum og spiluðum og skemmtum okkur konunglega. Kvöldið endaði mjög fyndið þar sem allt í einu var tengdapabbi farinn að sofa og Lúlli og mamma hans búin að læsa sig inn á klósetti á trúnó með koníakspela með ég og Lára litla systir hans sátum inn í stofu og skildum ekki neitt. Vorum ekki í alveg eins miklu annarlegu ástandi og þau mæðginin. Gærdagurinn fór svo í ýkta leti og enduðum í mat hjá Boggu og Hersteini og horfðum á The first head transplant - hryllingsmynd á vegum National Geographic en ýkt fræðandi.

Thursday, January 25, 2007

batnandi mönnum er best að lifa

ég lærði nýtt núna rétt í þessu - munið þið lagið Wake me up before you gogo með Wham
- náttúrulega yndislegt 80s lag eins og þau öll eru þegar lífið var einfalt allir sungu um "ekkert" og sveifluðu sér í takt en voru svoooo hamingjusamir. En allaveganna þá fann ég textann á netinu og sá að ég hafði misskilið hann

Jitterbug [4X]

You put the boom-boom into my heart
You send my soul sky high when your lovin' starts
Jitterbug into my brain
Goes a bang-bang-bang 'til my feet do the same
But something's bugging you
Something ain't right
My best friend told me what you did last night
Left me sleepin' in my bed
I was dreaming, but I should have been with you instead.

Wake me up before you go-go
Don't leave me hanging on like a yo-yo
Wake me up before you go-go
I don't want to miss it when you hit that high
Wake me up before you go-go
'Cause I'm not plannin' on going solo
Wake me up before you go-go
Take me dancing tonight
I wanna hit that high (yeah, yeah)

You take the grey skies out of my way
You make the sun shine brighter than Doris Day
Turned a bright spark into a flame
My beats per minute never been the same

'Cause you're my lady, I'm your fool
It makes me crazy when you act so cruel
Come on, baby, let's not fight
We'll go dancing, everything will be all right

Wake me up before you go-go
Don't leave me hanging on like a yo-yo
Wake me up before you go-go
I don't want to miss it when you hit that high
Wake me up before you go-go
'Cause I'm not plannin'' on going solo
Wake me up before you go-go
Take me dancing tonight
I wanna hit that high (yeah, yeah, baby)

(Jitterbug)
(Jitterbug)

Cuddle up, baby, move in tight
We'll go dancing tomorrow night
It's cold out there, but it's warm in bed
They can dance, we'll stay home instead

(Jitterbug)

Wake me up before you go-go
Don't leave me hanging on like a yo-yo
Wake me up before you go-go
I don't want to miss it when you hit that high
Wake me up before you go-go
'Cause I'm not plannin' on going solo
Wake me up before you go-go
Take me dancing tonight
Wake me up before you go-go, don't you dare to leave me hanging on like a
yo-yo
Take me dancing

(Boom-boom-boom)

'Eg sem sé skyldi aldrei þetta Jitterbug - og hélt í raun að þetta væri bara jukebox eða eitthvað álíka skyldi ekkert en í raun er þetta
a strenuously acrobatic dance consisting of a few standardized steps augmented by twirls, splits, somersaults, etc., popular esp. in the early 1940s and performed chiefly to boogie-woogie and swing.

Passar kannsi ekkert betur við textann en jukebox en maður lærir alltaf eitthvað nýtt og fyrir þá sem vilja fara aftur í tímann þá bíð ég ykkur þetta

Monday, January 22, 2007

strætódruslur

Núna þegar ég get ekki hjólað í vinnuna vegna þess að Ísland er leiðindaland sem alltaf snjóar í og þjónusta við almenning er ömurleg hvað varðar ruðning á gangstéttum og hjólastígum þá verð ég því miður að taka strætó. Ekki sérdeilis ánægð með hækkun á strætófargjöldum
280 krónur í strætó – fyrir þjónustu sem kemur einungis á 20 mínútna til 30 mínútna fresti og er aldrei (og ég meina næstum aldrei) á réttum tíma.

Stakt strætó 280 krónur sem samsvarar $4, £2, €3.10 – og Reykjavik er lítil lítil borg

Ég gerði smá óvísindalegan samanburð á strætóverði
London = 2 Pund (næstum sama og í Reykjavík (2,03 pund) nær því þó ekki alveg, en verðum líka að athuga að gengið er 137)
París = 1.30 evrur (1,8 evrum eða 162 krónum ódýrara en í Reykjavík)
Berlín = 1,20 evrur (1,9 evrum eða 172 krónum ódýrara en í Reykjavík)
Róm = 1 evra (2,10 evrum eða 190 krónum ódýrara en í Reykjavík)
New York = 1 dollari (3 dollurum eða 209 krónum ódýrara en í Reykjavík)

Þetta er fáranlegur verðmunur, svo ekki sé tekið mið af því að strætó á Íslandi fer á 20-30 mínútnta fresti en lengst af milli strætóa er t.d. um 10 -12 mín í London. Mér finnst að eitthvað þurfi að gera í þessu þetta er hreinlega ekki hægt. Hvernig dettur ráðamönnum í hug að gera svona og reyna svo að væla um að Reykjavíkingar taki ekki strætó!!!!!!!Væri mikið til í að sjá hvort tölur séu til um íbúðafjölda og notkun á strætó miðað við í Reykjavík og á Akureyri þar sem er ókeypis í strætó.
Hingað og ekki lengra

Thursday, January 18, 2007

Scaryyyyyyyyyyyy

Rakst á slúður um hana Lindsay Lohan í hádeginu í dag þar sem segir að hún sé að fara í meðferð greyið. einhvern veginn endaði ég á að flétta upp meiru varðandi hana, þessa 21 árs gömlu stúlku sem er búin að fara í brjóstastækkun og varastækkun og hver veit meira - kannski er snípurinn á henni of síður og vinstri stóra táin krumpuð. En ég vorkenni þessu fólki - ég skil vel að láta aðeins lappa upp á poka og þess háttar þegar húðin er orðin þreytt en þegar ungar stúlkur eru farnar að laga sig til þegar þær eru 17 ára og yngri þá finnst mér þetta skelfilegt. Hins vegar finnst mér alltaf gaman að skoða síður með svona freakum .
Bendi sérstaklega á kóala nefið hennar Parísar, brjóstin á Vivecu, og er pottþétt á að Mickey Rourke og Melanie Griffith geta unnið Michael Jackson um scaryface/scarface.
Góða skemmtun

Íslenskt já takk

Komst að nýju um daginn - alltaf gaman að fræðast
Eldavélin mín er ekki þýskt gæðastál eins og ég hélt heldur íslenskt gæðastál
Rafha vörumerkið er íslenskt og stendur fyrir Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði. Allir aðrir vita þetta e.t.v. en mér fannst þetta ofurmerkilegt og er alltaf til í að læra eitthvað nýtt
Íslenskt já takk

Monday, January 15, 2007

Gömul kelling

Er orðin gömul kelling - ef maður myndi hlusta á börn - en þar sem ég hlusta bara á mig - endurtek bara - þá er ég fegin að eitt ár enn er komið - ein hrukka enn - verð bara ánægðari og ánægðari - Hrukka þýðir bara reynsla og það er gaman - öll reynsla er góð reynsla hvort sem hún er ánægjuleg þegar hún átti sér stað eður ei.

Vá rosalega djúp á mánudagsmorni.
En takk fyrir alla kransa, blóm og kveðjur - óska öllum hinum líka sem ég hef ekki hringt í, sent póst o.þ.h. vegna afmælis eða annarra hátíðabrigða - TIL HAMINGJU - ég hugsaði til ykkar

Thursday, January 11, 2007

almáttugur

Ok sumir eiga bara ekki að tjá sig og hvað þá að gera myndband